Hæ, hæ.
Nú ætlar hún móðir mín blessuð að skrifa smá færslu af mér. Komin
tími til.

Mér gengur vel í skólanum. Er dugleg að læra og gengur mjög vel,
bæði í lestir og skrift. Umsögn kennarans míns í viðtali um daginn
var: María Björg er svo skemmtilegur og skapandi nemandi.

Það
eina sem kannski háir mér er smá feimni. Mér finnst ekki gaman að
vera í tímum þar sem maður á að standa og tala fyrir framan allan
bekkinn. Þeir sem þekkja til foreldra minna undrast þetta öruglega
ekki. Þau voru nú með eindæmum feimin sem börn bæði tvö.

En ég
er í svo frábærum skóla, sem tekur vel á svona félagslegum þáttum
og mamma er viss um að ég eigi eftir að yfirstíga þetta.

Svo æfi ég fimleika tvisvar í viku og það er alltaf jafn gaman. Ég
er í miklum úrvalshóp, með skemmtilegum stelpum. Sigga þjálfarinn
okkar er svo ánægð með okkur og segir að ef við höldum áfram að
vera svona duglegar að æfa okkur, verðum við jafn klárar og stóru
stelpurnar. Sem nota bene eru sko fyrirmyndir okkar allra.

Svo byrjaði ég að æfa freestiel í vetur og það er sko fjör. Og það
sem er allra skemmtilegast er að við fáum að koma fram í Stundinni
okkar. Já það er sko allveg satt. Þið verðið sko að horfa á
þá.

Þið sjáið að það er allveg nóg að gera hjá mér. Þegar ég er svo
ekki í skólanum og á æfingum er ég að leika við vinkonur mínar. Og
ég er svo heppin að eiga margar góðar vinkonur. Bestu vinkonur
mínar eru: Birta, Oddný og Guðbjörg Ósk. Ég og Birta erum nánast
búnar að vera óaðskiljanlegar síðustu viku, og í gær fengum við að
fara einar í sund í fyrsta skipti. Nú erum við nefnilega að verða 8
ára og þá má maður fara einn í sund. Mömmu fannst þetta nú gerast
heldur fljótt. Var pínu hrædd um litlu stelpuna sína eina í sundi.
En svona er þetta bara. Það er nú ekki hægt að láta eins og ég sé
smábarn alla ævina.

Jæja þá er nú komið smá upp deit af mér.
Ef þið eruð að skoða síðuna mína viljið þið þá vera svo væn að
kvitta fyrir komuna. Ég verð alltaf svo leið þegar enginn er búin
að skrifa

Bless, bless.
María Björg sem er allveg að verða 8 ára.